Ég nenni ekki !

Ég nenni ekki !

Ég nenni ekki !

Ég heyri þessa setningu mjög oft í mínu starfi, ég nenni ekki, hef ekki tíma o.s.frv.Það sem mér finnst mjög umhugsunarvert er hvað þá sérstaklega konur sem eru hörku duglegar í námi, vinnu, allt tipp topp í kringum börnin og heimilið, jafnvel að reka sín eigin fyrirtæki með ótrúlegan metnað í lífi og starfi, sem gætu ekki farið í gegnum daginn nema að vera með skipulagið á tæru. Sem því miðursetja sjálfa sig í síðasta sæti.


Þær vilja byrja í ræktinni, jafnvel ná til að ná einhverjum auka kílóum og bæta almennt hreysti, en gefasér ekki tíma í að skipuleggja heilsuna. Þetta á alveg við um alla en ég sé þetta aðallega hjá konum með fjölskyldu.


Ert þú að tengja?Þegar þú gefur þér tíma í örfáar mínútur um það bil 2 sinnum í viku til að skipuleggja hvað þú ætlar að borða, hvað þú ætlar að kaupa inn og hvenær þú ætlar að mæta á æfingar eða fara út í göngur, verður allt miklu auðveldara og árangurinn mun meiri. Ef þú getur haft aga og skipulag í lífinu getur þú það líka fyrir heilsuna og afraksturinn verður svo miklu meiri en bara betri heilsa. Ef þú hugsar vel um sjálfan þig verður þú mun betri maki, foreldri, vinur og starfsmaður, ekki gleyma því! Ef þér líður vel þá er allt annað svo miklu betra líka.


En við verðum að byrja á því að nenna og forgangsraða rétt. Það tekur 1-2 mánuði að tileinka sér nýja rútínu og þegar það gerist verður allt svo miklu auðveldara og maður hugsar, af hverju var ég ekki löngu búin að þessu. En við þurfum að nenna!


Ég sjálf er er alveg sek á að gleyma sjálfri mér, setja sjálfa mig í síðasta sæti þegar mikið er að gera, eða ég einfaldlega forgangsraða ekki rétt. Ég hef mörgu sinnum þurft að núllstilla mig og það er bara allt í lagi, en hvert sinn sem ég geri það tekur það skemmri tíma að komast aftur í góða rútínu fyrir sjálfa mig.


Til að ná árangri í hverju sem er í lífinu þurfum við að nenna, gefa okkur tíma og skipuleggja okkur. Þetta eigum við að vita, við sem höfum stundað nám, alið upp börn, jafnvel náð langt í íþróttum, að ekkert gerist að sjálfu sér og við eigum það skilið að gefa okkur tíma og skipulag fyrir heilsuna okkar.
Back to blog