HUGARFAR OG RANGHUGMYNDIR

HUGARFAR OG RANGHUGMYNDIR

Það sem ég hef tekið eftir í þessi ár sem ég hef verið að þjálfa er að þeir sem eru með hausinn á réttum stað þegar kemur að árangri og bættri heilsu, ná betur að viðhalda markmiðum sínum.Allt Of oft er fólk að telja sér trú um það sem virkar þó það meiki alls engan sens, bara ef það er nógu einfalt og þú þarft ekki að hafa mikið fyrir því. Eða þá einhverja tímabundna skyndilausn sem er ekki séns að halda út í lengri tíma.Margir vilja líka sjá árangur strax! Helst bara eftir viku. Ef það tók þig nokkra mánuði eða ár aðkomast á þann stað sem þú ert þá máttu búast við að það taki líkama þinn jafn langan tíma að komast á réttan stað.





 

Það á að vera gaman að rækta heilsuna en á sama borði líka krefjandi, eins og maður segir ´nothing comes easy´. Þú þarft að gera þér raunhæf markmið og ekki bara einbeita þér að tölu á vigtinni eða buxunum sem þú komst í áður en þú eignaðist börn. Settu þér markið með andlegan líðan og líkamsgetu.Það getur verið mjög erfitt og kannski bara alls ekki gaman að byrja. Skiljanlega, það er ekki gaman að vera þreyttur eða veikburða, en líkami okkar er ótrúlega fljótur að byggja sig upp og þetta verður alltaf betra.Ekki telja þér trú um það að ef þú léttist ekki eftir 7.daga hefur allt verið til einskis! Hver einasta ákvörðum um holla og næringarríka fæðu í stað skyndibita eða sykurs, hvert skipti sem þú fórst á æfingu eða út að ganga var heilsubætandi fyrir líkama þinn.Förum vel með líkama og sál.

Back to blog