Mig langaði aðeins að fara inn á þessa svokallaða megrunarkúra.Það eru margar nýjar og gamlar tískubylgjur í gangi núna, flestar þeirra hef ég þekkt í langan tíma þó þær séu ef til vill nýjar fyrir ykkur.
Margar af þeim hef ég prófað á sjálfri mér og/eða viðskiptavinum, lesið mig til um og sótt fyrilestra. Það sem ég hef tileinkað mér er að allir þessir kúrar hafa bæði eitthvað jákvætt og neikvætt fyrir alla. Enginn er eins og það sem eitt hentar einum hentar öðrum illa. Það sem spilar að mestu leyti inn í er matarsmekkur, allhliða heilsa og HVORT ÞÚ GETUR haldið kúrnum út í a.m.k þrjá mánuði án þess að fara mikið út af brautinni.
Þetta er í raun ekki flókið!
Ef þú ert að borða rusl sem er yfirleitt hátt í hitaeiningum og inniheldur litla næringu, ertu að setja ofan í þig óþarfa hluti sem líkaminn þinn þarf ekki á að halda og er þar að leiðandi erfitt fyrir líkamann að losa sig við. Þetta veldur því að þú bætir á þig og hefur slæm áhrif á heilsuna þína.

Ef þú borðar hinsvegar hreina fæðu sem er yfirleitt lág í hitaeiningum og með næringarefni semlíkaminn þinn þarfnast, eru mjög litlar líkur á því að þú bætir á þig og þú heldur góðri heilsu. Þetta er basically hitaeiningar inn og út með tillit til gæða matarins sem við látum ofan í okkur.
Ef ég er með einstakling sem er búin að gera allt þetta og vill ná af þessum þremur þrjósku aukakílóum, finnst mér í lagi að hrista aðeins upp í kerfinu og prufa aðrar aðferðir með gátt.
Því ætti ekki að þurfa að hamra á líkamanum ef rétt er farið að. Eins með að halda réttum hitaeiningafjölda fyrir líkamann og trappa sig niður. Af minni eigin reynslu get ég sagt að KETO, lágkolvetna, lágfitu, að fasta og svo fr. virkar allt, en ég tel það frekar sem ákveðnar tímabundnar skyndilausnir.
Ef þú ert búin að hreinsa allan skít úrmataræðinu þínu, ert ekki að borða yfir þig nokkrum sinnum yfir mánuðinn og ert núna að borðahreina fæðu 85% af mánuðinum í réttu magni og leyfir þér 15%, ættir þú að sjá og finna árangurinnán nokkurs vafa. Þannig ég segi að besta mataræðið fyrir ÞIG er það mataræði sem að ÞÚ getur haldið ÞIG við í lengri tíma og séð árangur.