Mikilvægi styrktarþjálfunar fyrir konur

Mikilvægi styrktarþjálfunar fyrir konur

Konur oft á tíðum eru mjög hræddar við að lyfta lóðum. Aðal ástæðan er yfirleitt vanþekking og halda að þú fáir of stóra vöðva eða verði ‘ bulki´

Þvert öfugt, vöðvarnir móta líkaman gefa honum fyllingu  á rétta staði og bæta líkamsstöðu.

Það þarf mjög mikið til og þó nokkur ár að nálgast það að verða eins og vaxtaræktartröll.

Vöðvamassi minnkar um það bil 3–8% á áratug eftir 30 ára aldur og þessi lækkun er enn meiri eftir 60 ára aldur. Þetta eru magnaðar tölur !

 

Rannsóknir sem hafa verið gerðar á styrktarþjálfun eru margar og ítarlegar. Hér koma þó nokkrir stuttir punktar um ávinningur styrktarþjálfunar fyrir konur á breytingaskeiði og almennt.

 

Eykur efnaskipti - Vöðvar eru virkari í efnaskiptum en fita, sem þýðir að þeir brenna fleiri kaloríum jafnvel þegar þú ert í hvíld.

 

Eykur beinþéttni - Eftir fertugt fer beinþéttni að minnka, sem eykur hættuna á beinbrotum. Styrktarþjálfun örvar beinvöxt, sem gerir þau sterkari og seigri.

 

Betri svefn – Mjög algengt þegar við konur eldumst að svefninn okkar versnar. Mjög margar konur sem ég hef verið að þjálfa tala einmitt um betri svefn eftir þær fóru að lyfta lóðum. Svefninn okkar er allt.

 

Betri andleg heilsa –  Einn af langtímaávinningum styrktarþjálfunar eftir fertugt er að hún getur bætt geðheilsu þína. Reyndar kom fram í einni rannsókn sem birt var árið 2023 að lyftingar hjálpa til við að draga úr kvíða og þunglyndiseinkennum. Þessar niðurstöður sanna að það er nauðsynlegt fyrir geðheilsu að viðhalda líkamlegri virkni sem lágmarkar líkamsfitu og eykur vöðvamassa með styrktaræfingum.

 

Liðheilsa - Heilbrigði liða. Styrktarþjálfun býður upp á verulegan ávinning fyrir heilbrigði liða, sérstaklega fyrir konur yfir fertugt sem geta fundið fyrir liðverkjum eða liðagigt …


Heilsa hjarta- og æðakerfis - Styrktarþjálfun bætir hjarta- og æðakerfið með því að draga úr hættu á hjartasjúkdómum, bæta kólesterólmagn og lækka blóðþrýsting.

Það er að koma meira í ljós að styrktarþjálfun er á jafns við þolþjálfun fyrir hjartveika enda er hjartað okkar einn stór vöðvi. Algengasta dánarorsök í heiminum vegna hjarta og æðasjúkdóma.

 

Aukið sjálfstraust Það sem ég hef séð konur og karla blómstra eftir að þau fóru að stunda reglulega styrktarþjálfun er algjörlega magnað. Og er það stór partur af hverju ég er í þessu starfi. Að finna allan þennan mun á líkamanum, finna hvað líkamin getur gert og finna hann styrkjast er ólýsanleg tilfinning. Svo er ekki verra að sjá líkamanum breytast og taka á sig heilbrigt form og vera sáttur í eigin skinni.

 

Bæting á hugrænni getu – Hversu oft hugsum við að við getum eitthvað ekki þegar kemur að því að ögra okkur í æfingum, taka þyngra eða jafnvel gera eitthvað út fyrir þægindarramman? Með því að sanna fyrir okkur sjálfum hvað við raun og vera getum hjálpar okkur í öllu öðru sem við tökumst á í lífinu.

 

Eykur orku – Oft erum við þreytt á morgnanna, í vinnunni eftir vinnu og segjum við okkur sjálf að við höfum ekki orku til að fara í ræktina. En þar sem við höfum rangt fyrir okkur í þessu er að þegar við gefum okkur tíma og bætum hreyfingunni inn í þá gefur það okkur meiri orku til að takast á við allt annað.

MEGUM EKKI GLEYMA AÐ STYRKTARÞJÁLFUN HEFUR JÀKVÆÐ ÁHRIF OG HJÁLPAR TIL VIÐ:

Blóðsykursstjórnun - blóðsykurmagn hefur tilhneigingu til að lækka með aldri. Rannsóknir hafa sýnt fram á verulegan árangur í insúlínnæmi og blóðsykursstjórnun eftir aðeins nokkra vikna styrktarþjálfun.

 

Minnkar hættu á meiðslum.

 

Léttast – Hjálpar okkur að léttast. Við brennum mun fleiri hitaeiningum í styrktarþjálfun en þolþjálfun.

 

BÆTIR lífsgæði - Sterkir vöðvar minnka líkur á verkjum í baki, öxlum og hálsi

  

 NR. 1-2-3 

Bætir skap – OG VIÐ VERÐUR Klárlega hressasta fólkið 😉

 

Back to blog